Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Asparteig 4, 250 Suðurnesjabær.
Um er að ræða fallega 3ja herbergja, 83,1 fm. íbúð. Eignin er staðsett á góðum stað í Garðinum í barnvænu hverfi, í göngufæri við leik- og grunnskóla, sundmiðstöð, íþróttahús, líkamsrækt og matvöruverslun.
Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, 2 svefnherbergi, sólpall að framan og aftan.
Nánari lýsing:Komið er inn í
anddyri með flísum gólfi og góðum fataskáp.
Hol er með parket á gólfi.
Alrýmið skiptist í
Eldhús, stofu og
borðstofu sem eru í opnu björtu rými. Þar eru stórir gluggar sem gera íbúðina bjarta með fallegu útsýni.
Í
stofunni er útgengt út á pall.
Eldhús hefur parket á gólfi, eldhúseyja með helluborði og viftu. Góð eldhúsinnrétting með innbyggðum ofn og ísskáp.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, sturtu með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið, upphengt salerni, handklæðaofn og snyrtileg baðherbergisinnrétting. Inná baðherbergi er
aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara með góðri innréttingu og skápaplássi.
Svefnherbergin eru 2 talsins, bæði parketlögð,
hjónaherbergið er rúmgott með fataherbergi með stórum fataskáp, þar er lúga uppá geymsluloft. Fataskápur er í
aukaherberginu.Bílaplan er hellulagt, rúmgóður
sólpallur að framan, bílahleðslustöð og ruslaskýli. Að aftan er
sólpallur með fallegt útsýni og
lóð er ræktuð.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ í síma 420-4050 og á netfangið [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.