Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Víðidal 30 í Innri-Njarðvík, 260. Reykjanesbæ.
*Sýnum samdægurs*
Um er að ræða glæsilegt 130 m2. 3. herbergja raðhús ásamt bílskúr. Íbúðin er 108,5 m2 og bílgeymslan er 21,5 m2
Gólfefni eru flísar og parket, innréttingar eru frá HTH
Virkilega vönduð og falleg hús byggð af Sparra ehf.
Nánari lýsing:Forstofa hefur flísar á gólfi og góðum fataskápum.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og hvítum fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og hvítum fataskápum.
Eldhús og stofa eru í opnu björtu rými, innréttingar eru frá HTH, uppvöskunarvél fylgir með. Helluborð er í eyju, ofn í vinnuhæð og örbylgjuofn.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgengt út á afgirta verönd.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, sturta, innrétting við vask og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr er innangengur frá forstofu. Flotað gólf og bílskúrshurðaropnari.
Staðsetningin er virkilega góð, falleg náttúra er allt um kring og stutt í ýmiskonar útivistarmöguleika. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og stutt upp á Reykjanesbraut. Stapaskóli, einn glæsilegasti leik- og grunnskóli landsins hefur tekið til starfa í þessu vaxandi hverfi og jafnframt mun opna þar almenningssundlaug og íþróttahús.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangið: [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. Gjaldskrá.