Laufdalur 21, 260 Njarðvík
64.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
123 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2018
Brunabótamat
59.200.000
Fasteignamat
60.350.000

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Laufdal 21, 260 Reykjanesbæ.
Um er að ræða virkilega vel skipulagt og vandað 123,5 m2 raðhús þar af er innbyggð 25,6 m2. bílgeymsla, á góðum stað í Njarðvík.

Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, hol og stór stofa ásamt borðstofu, eldhús og þvottahús. Góð lóð að aftan sem snýr í suður, framlóð er með upphituðu hellulögðu plani. gólfefni eru flísar og parket.  Íbúðarhluti hússins er skráður 97,7 m2. og bílskúrinn 25,6 m2, hægt er að setja gott milliloft yfir hluta af bílskúrnum.

Húsið er laust við kaupsamning!!!

Nánari lýsing:

Anddyri: Gengið er inní anddyri með harðparketi á gólfi, góður fataskápur.
Hol:  Úr anddyri er gegnið inn í stórt hol með harðparketi á gólfi.
Stofa og borðstofa: Innaf holi er góð stofu með harðparketi á gólfi, borðstofa er hluti af stofunni með harðparketi á gólfi. Hurð er út á baklóð.
Eldhús: Eldhús er opið inní borðstofu, skilið af með eyju milli borðstofu og eldhúss. Vel skipulögð innrétting og góð tæki.
Baðherbergi: Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru 3, með harðparketi á gólfi og skápar í öllum. Hjónaherbergið er mjög stórt með stóru fataherbergi. hurð er úr fataherbergi út á baklóð
Þvottahús: Þvottahúsið er með flísum á gólfi, góð innrétting, hurð inní bílgeymslu.
Bílgeymsla:  Út þvottahúsi er gengið inní  25,6 m2 bílgeymslu með málningu á gólfi,  góð aksturshurð. búið er að útbúa herbergi í hluta af skúrnum.


Húsið er fillterað að utan með hvítum lit, ómálað að öðru leyti, baklóð er grófjöfnuð.
Bílaplan og aðkoma að húsi er hellulögð með hitalögnum. Búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl.

Vel skipulagt og vandað hús með fallegum innréttingum frá KVIK.
Frábær staðsetning, í lokaðri götu,  mjög nálægt leikskóla og grunnskóla.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, síma 420-4050 og á netfangið [email protected]

 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja  bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.