Eignamiðlun Suðurnesja kynnir atvinnuhúsnæði að Vesturbakka 7G, bil 107, Þorlákshöfn
Allar nánari upplýsingar hjá M. Sævar Pétursson sími. 420-4050 / 894-2252 netfang [email protected]
Um er að ræða atvinnu eða geymsluhúsnæði að Vesturbakka 7, á besta stað við höfnina í Þorláksshöfn.
Um er að ræða endabil um 74,6 m2 grunnflöt með um 30 m2 íbúð á efri hæð með sér inngangi.
Aukaíbúðin er með sér inngangi frá norðurhliðinni og er aðskilin frá neðrihæðinni.
Anddyri: epoxymálning á gólfi, stigi upp í íbúð.
Stofa og alrými: með parketi á gólfi.
Eldhús: með flísum á gólfi, hvít innrétting með helluborði, viftu og tengi fyrir þvottavél. Eldhúsið er opið inní stofu.
Baðherbergi með flísum á gólfi, góð innrétting, sturta og salerni.Nánari lýsing:Húsið skiptist í 12 einingar. Inntaksrými er í norður enda hússins og er sameiginlegt. Gólfin eru máluð með epoxymálningu. Gólfhitakerfi er í gólfum. Skolvaskur er í hverri einingu og tengi fyrir salerni. Hefðbundin lýsing er í húsinu og rafmagn, gert er ráð fyrir einum 3ja fasa tengli. Lóðin er malbikuð með nægum bílastæðum.
Uppbygging húss:Húsið er byggt ofan á steypta sökkla með hefðbundinni staðsteyptri plötu.
Útveggir:Burðargrind hússins er úr límtré, klædd með PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Veggeiningar eru 80mm á þykkt með microrib áferð. Litur RAL 7016. Málningarhúð á veggeiningum er 55 míkron á þykkt og valin sérstaklega til að verjast betur gegn UV-geislun (upplitun) og veðrun.
Milliveggir:Milliveggir eru úr álstoðum klæddir með spónarplötum og gifsi, einagraðir með steinull. Veggirnir eru sparslaðir og málaðir.
Hurðir:Innkeyrsluhurðir eru frá Héðin, litur RAL 7016 með samlitum gluggum. Stærð hurða 380x400. Húsið er með vönduðum tré gluggum og hurðum. Litur RAL 7016.
Þak:Þak er byggt upp með 100mm þykkum PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Málningarhúð 200 míkron. Litur RAL 7016.
Lóð:Lóð er malbikuð og verður afgirta að aftan.
Á húsinu hvílir vaskkvöð sem kaupandi yfirtekur.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. verðskrá.